Leiðbeiningar

Áður en þú notar Orkulykilinn í fyrsta skipti þarf að tengja hann.  Ef þú hefur fengið lykilinn afhentan af fulltrúa Orkunnar er hann að öllum líkindum tengdur og tilbúinn til notkunar. Ef þú hefur fengið Orkulykilinn til þín í pósti þarf að tengja Orkulykilinn við greiðslukortið þitt. Það gerir þú hér: Tengja Orkulykilinn (linkur vísar í Tengja orkulykilinn)

Notkun Orkulykilsins/Orkukortsins.

1. Leggið Orkulykilinn eða Orkukortið að skynjara eða stingið kortinu í raufina fyrir greiðslukort.
2. Fylgið með leiðbeiningum á skjánum þar til skjár sýnir:  ,,Dæla er tilbúin".
3. Sláið inn PIN-númer ef við á.
4. Takið dælubyssu úr slíðri og dælið.
5. Setjið byssu í slíður að lokinni dælingu.
6. Til að fá kvittun:  Leggið Orkulykilinn/Orkukortið að skynjara eða stingið korti í raufina fyrir greiðslukortið.  Veljið:  ,,Fá kvittun". 

Ef umbeðin heimild nýtist ekki að fullu skuldfærist einungis sú upphæð sem tekin var fyrir.

Kvittun

Þegar búið er að dæla getur þú borið lykilinn að dælulesaranum og velur ,,Fá kvittun". Til að fá kvittun senda í tölvupósti þarf að skrá sig inn á þjónustuvefinn og velja "Grunnskráning." Þar getur þú hakað í "Fá kvittun senda í tölvupósti". Eftir það kemur ávallt kvittun fyrir öllum úttektum á lyklinum á uppgefið netfang.

Greitt með seðlum

1. Setjið 500 kr., 1000 kr., 2000 kr. eða 5.000 kr. seðil í raufina merkta seðlum.
Snúið þeim þannig að framhliðin vísi upp eða hvíti kantur seðilsins snúi að raufinni.
2. Fylgist með skjánum og sjáið innsetta upphæð birtast þar.
3. Kvittun. Eftir að sjálfsalinn hefur móttekið seðlana, þarf að velja kvittun áður en dæla er valin.
4. Veljið þá dælu sem bíllinn stendur við.
5. Dælið.
6. Ef upphæðin, sem sett var í sjálfsalann, nýtist ekki að fullu - prentast út mismunarnóta. Geymdu nótuna og hafðu samband við skrifstofu Orkunnar í síma 578 8800