Umsókn og útgáfa Orkufrelsis

Skrifstofa Orkunnar., Hólmaslóð 8, 101 Reykjavík, gefur út Orkufrelsi.  Hægt er að sækja um Orkufrelsi á vefsíðu Orkunnar, www.orkan.is eða í síma 587-8800.

Almennt um Orkufrelsi

- Orkufrelsi stendur fyrir fyrirframgreitt eldsneytisúttektarkort.
- Orkufrelsi er ætlað til úttekta í sjálfsölum Orkustöðvanna.  Inneign á Orkufrelsi fæst afgreidd í formi eldsneytis í sjálfsafgreiðslu á bensínstöðvum Orkunnar og á bensínstöðvum Shell. Athygli er vakin á því að innborganir á Orkufrelsi eru ekki endurgreiddar.
- Korthafi fær úthlutað leyninúmeri, svokölluðu PIN-númeri, sem hann ber ábyrgð á að komist ekki í hendur utanaðkomandi, enda er skráður handhafi kortsins ábyrgur fyrir öllum úttektum á kortið.
- Korthafi veitir Orkunni heimild til að senda honum markaðsefni með sérstökum tilboðum, afsláttum, sérkjörum og öðrum upplýsingum sem Orkan telur að korthafi gæti haft ávinning af. Upplýsingar um korthafa verða ekki veittar þriðja aðila.
- Bensínorkan áskilur sér rétt til að leiðrétta millifærslur viðskiptavinar allt að 30. dögum eftir greiðslu.

Glatað kort

Glati korthafi korti sínu skal tilkynna það án tafar til Orkunnar, sem gerir strax ráðstafanir til að loka fyrir frekari úttekt á kortið.  Fullnægi korthafi ekki tilkynningarskyldu varðandi hvarf kortsins, ber korthafi fulla ábyrgð á úttektum.

Breytingar á aðsetri

Korthafi skal tilkynna breytingar á aðsetri, símanúmeri og tölvupóstfangi til skrifstofu Orkunnar jafnskjótt og mögulegt er til að tryggja að viðeigandi upplýsingar berist honum eftir eðlilegum leiðum.

Skilmálabreytingar

Orkan áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara viðskiptaskilmála, enda verði handhafa Orkufrelsis tilkynnt um það.  Útsending nýrra viðskiptaskilmála með tölvupósti og birting á heimasíðu Orkunnar telst nægileg tilkynning.  Litið er svo á, að handhafi Orkufrelsis hafi samþykkt breytinguna ef hann notar kortið eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.

Ágreiningur

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim er heimilt að reka mál  vegna þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

Gildistími skilmála

Skilmálar þessir gilda frá 18. febrúar 2010.