Skilmálar

Umsókn og útgáfa Orkukorts og Orkulykils

Skeljungur hf, eigandi Orkunnar, Borgartúni 26, 105 Reykjavík, gefur út Orkukort, Orkulykil og snjallsíma-forritið Orku-appið. Hægt er að sækja um Orkukort og Orkulykil hér á vefsíðu Orkunnar eða í síma 578-8800. Orku-appið er smáforrit sem má sækja í gegnum snjallsíma. Til einföldunar verður hér eftir talað um Orkulykil þegar átt er við Orkukort, Orkulykla og Orku-app, nema annað sé tekið fram.

Almennt um Orkulykilinn

  • Orkulykillinn er eign Skeljungs hf. en meðferð og notkun hans er á ábyrgð handahafa orkulykilsins. 
  • Orkulykill er ætlaður til úttekta í sjálfsölum og bensínstöðvum Orkunnar og Shell og verslunum Stöðvarinnar. Sem stendur er ekki hægt að greiða með Orku-appi á Stöðinni en stefnt er að því að það verið mögulegt.
  • Skráður handhafi Orkulykilsins skuldbindur sig til að greiða að fullu allar þær úttektir sem framkvæmdar eru með lyklinum, hvort sem þær eru í þágu handhafans eða þriðja aðila. 
  • Handhafi Orkulykils ber ábyrgð á því að rétt bensínafgreiðslustöð og rétt bensínafgreiðsludæla séu valdar, þegar við á, svo sem við notkun Orku-apps. 
  • Vilji handhafi Orkulykils hætta við dælingu skal byssa valinnar bensínafgreiðsludælu tekin úr slíðrinu og sett kyrfilega aftur í slíðrið. Sé hins vegar ekkert aðhafst lokast dælan sjálfkrafa eftir 1,5-3 mínútur. Handhafi Orkulykils ber áhættuna af því að þriðji aðili hefji ekki dælingu á meðan.   
  • Orkulykillinn er tengdur debet- eða kreditkorti. Úttektir sem gerðar eru með Orkulykli eru því innheimtar með færslu um kortareikning viðkomandi Orkulykils. Orkufrelsi er ótengt greiðslukortum.
  • Á sérstökum afsláttardögum leggjast tilgreindir afslættir ekki ofan á þá afslætti sem lyklahafar eru með fyrir, nema það sé sérstaklega tekið fram. Viðskiptavinur fær ávallt þann afslátt sem hagstæðastur er hverju sinni. 
  • Orkulykillinn er sendur heim að dyrum, viðskiptavini að kostnaðarlausu. Mikilvægt er að rétt heimilisfang sé skráð við umsókn um Orkulykilinn. Orku-appinu er hlaðið niður í snjall-síma af internetinu.

Breytingar á persónuupplýsingum

Handhafi Orkulykilsins skal tilkynna breytingar á aðsetri, símanúmeri og tölvupóstfangi til Orkunnar á orkan@orkan.is eins fljótt og hægt er til að tryggja að viðeigandi upplýsingar berist honum eftir eðlilegum leiðum.

Notkun upplýsinga

Þegar sótt er um Orkulykil skal gefa upp GSM-númer og netfang. Orkan áskilur sér rétt til að nota upplýsingarnar til að senda skráðum handhafa Orkulykilsins upplýsingar um tilboð eða annað kynningarefni sem þeim býðst á Orkunni, Stöðinni eða hjá Shell, og handhafinn hagnast á. Upplýsingarnar verða ekki sendar þriðja aðila. 

Týndur Orkulykill eða -kort

Glatist Orkulykill skal tilkynna það án tafar með tölvupósti á orkan@orkan.is eða í síma 578-8800 á skrifstofutíma. Utan skrifstofutíma skal tilkynna það í símanúmerið 444 3024.
Athugaðu að handhafi Orkulykils, Orkukorts, Orkufrelsis og Orku-apps ber fulla ábyrgð á eldsneytisúttektum allt þar til tilkynning hefur borist Orkunni um að viðkomandi lykill, eða -kort hafi glatast. 

Ágreiningur

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim er heimilt að reka mál  vegna þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

Gilidistími skilmála

Skilmálar þessir gilda frá 1. febrúar 2012