Orku-appið

Orku-appið er snjallsímaforrit fyrir I-phone og Android síma. Hægt er að sækja forritið þér að kostnaðarlausu í App Store og Google Play

Með Orku-appinu hefur þú innan handar:

  • Tilboð sem Orku-lykillinn og Skeljungs-kort veita sem og almenn tilboð
  • Upplýsingar um alla útsölustaði Orkunnar, Shell og Stöðvarinnar 
  • Yfirlit yfir öll þín viðskipti með Orkulyklinum og staðgreiðslukorti Skeljungs
  • Upplýsingar um ódýrasta eldsneytið samkvæmt bensinverd.is
  • ...  og svo getur þú 

    keypt 

    eldsneyti með Orku-appinu. (þarf að skrá sig sérstaklega til að kaupa eldsneyti)


Spurt og svarað


Þarf ég að eiga lykil/kort til þess að nota appið?

Nei, en til þess að kaupa eldsneyti þarf að eiga lykil/kort. Hægt er að sækja um lykilinn í appinu eða hér á orkan.is

Kostar eitthvað að ná í forritið?
nei, það kostar ekkert að ná í forritið í App Store né Android Market

Missi ég afsláttinn minn ef ég tengi lykilinn við appið?
Nei, afslátturinn þinn helst inni

Virkar þetta aðeins á Orkustöðvunum?
Nei, hægt er að kaupa eldsneyti bæði á Orku- og Shell dælum.
(það er ekki hægt að greiða inni í verslun fyrst um sinn)

Hvernig tengi ég lykilinn við appið?
Fyrst og fremst þarf að vera með aðgang að þjónustuvefnum. Þegar þú ert búin/nn að skrá þig inn getur þú valið lykil se, á að tengja við.

Hvernig tengist ég þjónustuvefnum?
Undir mínum síðum þarf að slá inn kennitölu, lykilorð og svo valið innskráning

Vantar lykilorð
Ef þú hefur ekki aðgang (og ert skráð/ur með lykil eða kort), þá getur þú sóttum aðgang hér á vefnum, eða í gegnum appið.
Velur mínar síður, slærð inn kt. og netfang. Svo valið „sækja um aðgang“. Lykilorðið er sent í heimabanka.

Týnt lykilorð

Ef þú ert nú þegar með aðgang en manst ekki lykilorðið getur þú valið týnt lykilorð. Hægt er að velja um hvort það komi í tölvupósti eða sms.