Orkuvernd

Orkuvernd er ný verðstefna Orkunnar. Með Orkuvernd leitast Orkan við að bjóða lægsta verð á eldsneyti í hverju landsvæði og býður sama verð á eldsneyti innan sama landsvæðis.
Ef verð á eldsneyti samkeppnisaðila lækkar niður fyrir eða niður að verðinu sem Orkan býður, mun verðið á Orkunni lækka.

Skipting Orkuverndar í landsvæði – Sama verð innan landsvæðis

ALMENNT VERÐ
ORKUFRELSI
ORKUKORT/LYKILL
Svæði95 oktDísel
Austurland250,2255,8
Höfuðborgarsvæðið250,2255,8
Norðurland250,2255,8
Suðurland250,2255,8
Suðvesturhornið250,2255,8
Vestfirðir250,2255,8
Vesturland250,2255,8
95 oktDísel
247,2252,8
247,2252,8
247,2252,8
247,2252,8
247,2252,8
247,2252,8
247,2252,8
95 oktDísel
248,2253,8
248,2253,8
248,2253,8
248,2253,8
248,2253,8
248,2253,8
248,2253,8


Svona virkar Orkuvernd

Vefsíðan bensinverd.is birtir verð á eldsneyti á bensínstöðvum olíufélaganna. Starfsmenn Orkunnar fylgjast grannt með vefsíðunni bensinverd.is og styðjast við þær upplýsingar sem þar koma fram við breytingar á verði hjá Orkunni.

Við lögum verðið eins fljótt og við getum

Bensinverd.is birtir verðin eins og þau sjást á heimasíðum olíufélaganna. Kjósi einhver af olíufélögunum að birta annað verð á heimasíðu sinni en raunverulega er í boði úti á bensínstöðvunum, kann það að hafa áhrif réttmæti gagnanna sem stuðst er við í Orkuvernd.

Mælum með því að fólk versli þar sem ódýrast er

Lækki eitthvað olíufélag verðið á eldsneytinu undir kostnaðarverð, mun Orkan ekki fylgja í kjölfarið, heldur mæla með því að viðskiptavinir versli við það tiltekna olíufélag. Orkuvernd er jú ætlað að draga fram lægsta verðið á eldsneyti í hverju landssvæði.

Orkuvernd er virkust þegar flestir taka eldsneyti

Starfsmenn Orkunnar fylgjast með verðbreytingum á bensinverd.is frá klukkan 8:00 á morgnanna til klukkan 23:00 á kvöldin. Ef verð annarra olíufélaga lækkar niður fyrir verð Orkunnar eða jafnar verð Orkunnar eftir klukkan 23:00 má gera ráð fyrir því að Orkan nái ekki að lækka sitt verð fyrr en klukkan 8:00 morguninn eftir.