11.11.2025

2,7 milljónir króna söfnuðust til Bleiku slaufunnar frá Orkuboltum

Í samvinnu við viðskiptavini okkar söfnuðum við 2,7 milljónum til styrktar Bleiku slaufunnar árið 2025.

Alls söfnuðum 2,7 milljónum frá Orkuboltum til styrktar Bleiku slaufunnar sem er átak Krabbameinsfélagsins gegn krabbameinum hjá konum. 

Orkulykilhöfum í styrktarhóp Bleiku slaufunnar fjölgaði einnig um 47% sem við erum einstaklega þakklát fyrir og stolt að sjá hversu margir Orkuboltar vilja styðja þetta mikilvæga málefni. Viðskiptavinir með skráðan Orkulykil í styrktarhóp Bleiku slaufunnar gefa 1 krónu af sínum afslætti allan ársins hring og tvær krónur í október. Við jöfnum síðan upphæðina sem viðskiptavinir safna. Auk þess gefum við 5 krónur af hverjum seldum lítra og hverri seldri kílóvattstund á Bleika daginn sem var 22. október í ár.

Á Bleika deginum birtum við upphæðir frá viðskiptavinum á umhverfis- og vefmiðlum til að sýna fram á að margt smátt gerir eitt stórt.

Við gerum viðskiptavinum kleift að styðja Krabbameinsfélagið allan ársins hring með Orkulyklinum með því að skrá sig í hóp Bleiku slaufunnar á mínum síðum og einnig er hægt að kynna sér málefnið nánar hér.