Orkan IS var stofnuð í kjölfar uppskiptingar Skeljungs hf. þann 1. desember 2021.
Starfsemi Orkunnar snýr að því að þjónusta ökutæki með einföldum og snjöllum hætti, bjóða lægsta verð í öllum landshlutum og ákveðnum hlutum höfuðborgarsvæðisins, hraðari hleðslu og besta bílaþvottinn ásamt því að selja og bjóða viðhaldsþjónustu við bílaþvottavélar til þriðja aðila. Við leggjum áherslu á að veita viðskiptavinum bestu þjónustuupplifun á sjálfsafgreiðslustöðvum.
Orkan rekur 75 fjölorkustöðvar um land allt, þar af tíu fjölorkustöðvar sem bjóða upp á auk jarðefnaeldsneytis metan og/eða rafhleðslu á ökutæki. Við viljum stuðla að virkri samkeppni og keppum á verðum en það hefur verið áhersla hjá Orkunni allt frá stofnunn árið 1994. Hjá Orkunni eru 13 afsláttarlausar stöðvar, þar sem viðskiptavinum býðst lægsta eldsneytisverðið í því bæjarfélagi. Afsláttarlausu Orkustöðvarnar eru staðsettar á Dalvegi og Salavegi í Kópavogi, Reykjavíkurvegi og Einhellu í Hafnarfirði, Bústaðarvegi, Skógarhlíð, Suðurfelli og Kleppsvegi í Reykjavík, Furuvöllum, Hörgárbraut og Mýrarvegi á Akureyri, Suðurlandsvegur á Selfossi og Brúártorg í Borgarnesi.
Orkustöðvar eru að finna um land allt og með Orkulyklinum geta viðskiptavinir tekið þátt í leiknum Haltu þínu striki, sama hvar á landinu þeir eru staddir. Með því að kaupa eldsneyti eða rafmagn að minnsta kosti einu sinni í mánuði safna lykilhafar strikum og þegar þeir hafa haldið sínu striki í 12 mánuði í röð fá þeir fría dælingu. Fría dælingin miðast við meðaltal dælinga yfir tímabilið.
Með Orkulyklinum geta viðskiptavinir einnig látið gott af sér leiða með því að tengja lykilinn við góðgerðarmálefni eða íþróttafélag að eigin vali og þannig styrkt gott málefni í hvert sinn sem þeir dæla.
Orkan á og rekur Löður sem er þjónustufyrirtæki, leiðandi á markaði í bílaþvotti fyrir ökutæki á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. Þjónustustöðvar Löðurs eru 12 talsins á landinu; ein í Reykjanesbæ, ein í Vestmannaeyjum og 9 á höfuðborgarsvæðinu.