2,5 tonn voru flokkuð í umbúðagámana
Viðskiptavinir okkar söfnuðu 2,5 tonnum af pappa og plasti í jólaumbúðagámana.
Viðskiptavinir okkar söfnuðu 2,5 tonnum af pappa og plasti í jólaumbúðagámana.
Við erum alltaf að leita leiða til að stytta viðskiptavinum sporin og aðstoða við flokkun. Fjórða árið í röð buðum við upp á umbúðagáma á milli jóla og nýárs.
Verkefnið var unnið í samstarfi við HP gáma og í ár buðum við upp á tvo gáma á hverri staðsetningu, einn fyrir plast og annan fyrir pappa og jólapappírinn. Umbúðagámarnir voru staðsettir á fimm staðsetningum við Orkuna á Austurströnd, Gylfaflöt, Kleppsvegi, Reykjavíkurvegi, Skagabraut og Mýrarvegi.
Við buðum viðskiptavinum okkar á Akureyri í fyrsta skiptið að flokka jólapappír og plast í umbúðagáma á milli jóla og nýárs og tókst vel til.
Viðskiptavinir okkar söfnuðu rúmlega 2,5 tonnum af úrgangi.
Takk fyrir að nýta orkuna til að flokka!