Sumarið á Íslandi er bjart og fullt af ævintýrum. Hvort sem þú ert að leita að útivist, afslöppun eða skemmtilegum samverustundum með fjölskyldu og vinum, þá eru hér 26 hugmyndir til að njóta sumarsins í botn☀️
1. Fara í lautarferð
Pakkaðu nesti, teppi og góða skapinu. Það þarf ekki meira til að skapa frábæran sumardag.
2. Gista í tjaldi
Það er eitthvað sérstakt við að vakna við fuglasöng og ferskt loft.
3. Dýfa tánum í náttúrulaug
Heitar laugar og íslenskt sumar eru ómótstæðileg blanda.
4. Heimsækja lundabyggð
Sumarið er besti tíminn til að sjá þessa fallegu fugla.
5. Blása sápukúlur
Stundum eru einföldustu hlutirnir skemmtilegastir. Taktu sápukúlur með út og njóttu augnabliksins.
6. Skoða fossa
Það eru fleiri fossar á Íslandi en flestir gera sér grein fyrir.
7. Fara í hjólatúr
Hvort sem það er í borginni eða úti á landi er hjólatúr frábær leið til að njóta sumarsins.
8. Fara í kajakferð
Sjáðu strendur og náttúru frá allt öðru sjónarhorni.
9. Grilla úti með vinum
Sumarkvöld og grill eru klassísk samsetning.
10. Kríta fallegt listaverk
Skreyttu stéttina eða bílaplanið með litríkum sumarmyndum.
11. Fara í hvalaskoðun
Ógleymanleg upplifun þegar hvalirnir birtast við bátinn.
12. Heimsækja gróðurhús
Smakkaðu íslenskt grænmeti og ávexti, eins ferskt og það gerist.
13. Fara í ísbúðina og fá sér ís
Nánast þjóðaríþrótt Íslendinga.
14. Skoða nýjan landshluta
Alltaf gaman að ferðast innanlands og uppgötva nýja staði.
15. Fara í fjallgöngu
Útsýnið eru alltaf verðlaunin.
16. Kíkja í sund
Klassísk íslensk sumarafþreying sem klikkar ekki.
17. Fara á útihátíð eða bæjarhátíð
Tónlist, menning, matur og góð stemning.
18. Veiða fisk
Hvort sem það er í á, vatni eða sjó er alltaf gaman að fara veiða.
19. Fara á hestbak
Njóttu íslenskrar náttúru á baki íslenska hestsins.
20. Taka mynd af regnboga
Á Íslandi eru líkurnar yfirleitt með þér.
21. Gista í sumarbústað
Slökkva á amstri dagsins og njóta kyrrðarinnar.
22. Fara í sjósund
Kalt, hressandi og ótrúlega endurnærandi.
23. Fara í kvöldgöngu í miðnætursólinni
Þegar færri eru á ferðinni og náttúran oft upp á sitt fallegasta.
24. Fara í frisbígolf
Frábær afþreying fyrir alla aldurshópa og skemmtileg leið til að njóta útiverunnar með vinum eða fjölskyldu.
25. Búa til risastóra vatnsrennibraut í garðinum
Það er erfitt að toppa hláturinn sem fylgir því.
26. Borða kvöldmat undir berum himni
Á svölunum, í garðinum eða á ströndinni. Allt bragðast betur í sumarsólinni.
Sumarið snýst ekki um að gera sem mest, heldur að njóta augnablikanna sem gera það eftirminnilegt🩷