12.10.2026

Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum 2026

Við hlutum viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum þriðja árið í röð.

Við hlutum viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum þriðja árið í röð.

Viðurkenningin er veitt af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland og er markmið hennar að hvetja til umræðu og aðgerða sem styrkja og efla góða stjórnarhætti.

Góðir stjórnarhættir ná yfir alla helstu þætti í rekstri fyrirtækja og snúa meðal annars að samskiptum við starfsfólk, viðskiptavini, eigendur, stjórnendur, birgja og samfélagið í heild.

Við erum einstaklega ánægð með að hljóta viðurkenninguna nú í þriðja sinn. Hún segir okkur að við séum á réttri leið og hvetur okkur áfram til að gera enn betur.

Viðurkenningin er ekki síst árangur allra þeirra frábæru Orkubolta sem leggja sitt af mörkum á hverjum degi og eiga stóran þátt í því að skapa gott og öflugt starfsumhverfi.

Við erum ótrúlega stolt af þessum árangri og höldum áfram á fullri ferð!

Takk fyrir að velja Bleiku stöðina og megi Orkan vera með þér.