29.10.2026

Orkan er Framúrskarandi fyrirtæki þriðja árið í röð!

Við erum í hópi Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo árið 2026, þriðja árið í röð!

Við erum stolt af því að vera í hópi Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo árið 2026, þriðja árið í röð!

Ár hvert veitir Creditinfo viðurkenningu til þeirra fyrirtækja sem skara fram úr í rekstri og uppfylla ströng skilyrði um meðal annars fjárhagslegan styrk, stöðugleika og rekstrarárangur. Aðeins um 2% íslenskra fyrirtækja komast í þennan hóp og því er þetta fagnaðarefni að vera þar á meðal enn eitt árið.

Á bak við góðan árangur standa frábærir Orkuboltar sem leggja sitt af mörkum á hverjum degi. Viðurkenningin er því ekki síður þeirra og endurspeglar þann kraft, metnað og góða starf sem einkennir okkar öfluga hóp.

Með Orkuboltana í fararbroddi höldum við áfram að gefa í og gera enn betur fyrir viðskiptavini okkar um land allt.

Megi Orkan vera með þér!