Orkan er Fyrirtæki ársins 2026!
Við hlutum viðurkenninuna Fyrirtæki ársins 2026 hjá VR.
Við hlutum viðurkenninuna Fyrirtæki ársins 2026 hjá VR.
Niðurstöður úr stærstu vinnumarkaðskönnun landsins, könnun VR um Fyrirtæki ársins 2026, liggja nú fyrir ✨ Þar var meðal annars spurt um starfsanda, stjórnun, starfsánægju, jafnrétti og vinnustaðamenningu. Fyrirtækin sem sköruðu fram úr hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur.
Veitt voru verðlaun í þremur flokkum, lítil, meðalstór og stór fyrirtæki. Það voru 15 efstu fyrirtækin í hverjum flokki sem fengu boð á athöfnina sem fór fram í Hörpu og fengu þau öll nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki 2025. Við fengum svo aðal viðurkenninguna sem aðeins þau þrjú fyrirtæki hljóta sem skora efst í hverjum flokki, en við vorum valin FYRIRTÆKI ÁRSINS 2026!
Þessar viðurkenningar eru sterk staðfesting á því sem við höfum verið að byggja upp saman. Markmiðið okkar hefur alltaf verið að skapa vinnustað þar sem ríkir traust, jákvæðni og sterk liðsheild, stað þar sem allir fá rödd og geta haft áhrif.
Takk Orkuboltar fyrir að gera vinnustaðinn okkar svona skemmtilegan, orkumikinn og einstakan💗