21.04.2026

Við höfum hækkað endurgreiðsluna þegar þú verslar með Aukakrónum

Nú færð þú 2,1% endurgreitt í formi Aukakróna þegar þú greiðir með Aukakrónukorti á stöðvum okkar.

Við höfum hækkað endurgreiðsluafsláttinn þegar þú verslar með Aukakrónukortinu. Nú færð þú 2,1% endurgreitt í formi Aukakróna þegar þú greiðir með Aukakrónukorti á stöðvum okkar.

Hvernig virka Aukakrónur?
Þú notar Aukakrónukortið eins og hvert annað greiðslukort þegar þú verslar hjá Orkunni og færð Aukakrónur endurgreiddar af hverri færslu. Ef kortið er tengt við Orkulykilinn safnast Aukakrónur sjálfkrafa í hvert sinn sem þú notar lykilinn.

Ásamt Aukakrónum er hægt að greiða með öllum helstu greiðslukortum, Apple Pay, Google Pay, Orkulyklinum og Netgíró á stöðvunum okkar ásamt e1 fyrir rafmagnið.

Hvernig tengi ég kortið við Orkulykilinn?
Þú getur gert það á Mínum síðum eða haft samband við þjónustuverið okkar og við aðstoðum þig.