Samstarf við Skógræktarfélag Stykkishólms
Það er okkur mikilvægt að vera þátttakandi í samfélagsverkefnum í nærumhverfi stöðva okkar.
Það er okkur mikilvægt að vera þátttakandi í samfélagsverkefnum í nærumhverfi stöðva okkar.
Skógræktarfélag Stykkishólms óskaði eftir samstarfi við okkur í vor með það að markmiði að fegra umhverfið í kringum stöðina okkar í Stykkishólmi. Keypt voru tíu tré til að gróðursetja umhverfis stöðina og keyptur bekkur sem var málaður í Orkubleika litnum okkar.
Það er okkur mikilvægt að vera þátttakandi í samfélagsverkefnum í nærumhverfi stöðva okkar og mjög ánægjulegt að sjá jákvæð viðbrögð viðskiptavina og bæjarbúa við þessu framtaki. Útkomin er glæsileg og þökkum við Skógræktarfélag Stykkishólms kærlega fyrir frábært samstarf og sérstakar þakkir fá orkuboltarnir og félagar skógræktarfélagsins Ásmundur Guðmundsson og Benedikt Haraldsson fyrir framstakssemi í verkefninu. Þeir höfðu umsjón með framkvæmd og frágang verkefnisins.
Verið velkomin á bleiku stöðina okkar í Stykkishólmi 💖