29.04.2026

Sjálfbærniskýrsla Orkunnar 2025 er komin út!

Í skýrslunni förum við yfir árið 2025, vegferð okkar í sjálfbærnimálum, stefnu og framtíðarsýn.

Það er mikilvægt að líta yfir farinn veg, skoða hvar við stöndum vel í sjálfbærnimálum og hvar tækifæri eru til að gera enn betur. Á árinu tókum við áfram stór skref í orkuskiptum, meðal annars með fjölgun hraðhleðslustöðva og erum við afar stolt af þeirri vegferð.

Árið 2025 voru stöðvar Orkunnar 75 talsins um allt land og Orkan er eina félagið á Íslandi sem býður upp á alla fimm orkugjafana: bensín, dísel, rafmagn, metan og vetni.

Í skýrslunni má einnig lesa um fjölbreytt verkefni ársins. Við ætlum ekki að telja þau öll upp heldur hvetjum við þig til að lesa skýrsluna hér og kynnast okkur Orkuboltunum betur.

Megi Orkan vera með þér! ⚡