29.01.2026

Allar stöðvar Orkunnar nú alþjóðlega umhverfisvottaðar

Við erum fyrsta eldsneytisfyrirtækið á Íslandi sem hlýtur alþjóðlega umhverfisvottun fyrir allar stöðvar.

Við höfum hlotið alþjóðlega umhverfisvottun fyrir rekstur allra þjónustustöðva okkar um allt land.

Þetta er í fyrsta sinn sem eldsneytisfyrirtæki á Íslandi fær slíka vottun fyrir allar stöðvar sínar og við erum afar stolt af þeim áfanga. Vottunin sem um ræðir er ISO 14001 umhverfisvottun, veitt af British Standards Institution (BSI) og staðfestir að við störfum samkvæmt viðurkenndu umhverfisstjórnunarkerfi sem gerir ríkar kröfur um ábyrgð, eftirlit og stöðugar umbætur. 

ISO 14001 er einn mikilvægasti alþjóðlegi staðallinn á sviði umhverfisstjórnunar og byggir á því að fyrirtæki geti sýnt fram á í verki að það fylgi öllum lögum og reglum sem tengjast starfseminni, greini og stýri umhverfisáhrifum og hafi virkt innra eftirlit. Fyrir okkur felur þetta meðal annars í sér markvisst eftirlit með rekstri þjónustustöðva, reglulegar mælingar og skráningar, skýrar væntingar til birgja og verktaka og öfluga Orkuvakt sem tryggir að stöðvarnar okkar séu snyrtilegar og að viðhaldi sé sinnt kerfisbundið um allt land.

„Þessi vottun er viðurkenning fyrir þá vinnu sem unnin hefur verið innan Orkunnar til að gera umhverfismál að órjúfanlegum hluta af daglegum rekstri. Hún staðfestir þá vegferð sem við höfum verið á og við munum nýta hana áfram til góðra verka í nánu samstarfi við  viðskiptavini og samfélagið.“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar.  

Við höfum sett okkur það markmið að vera leiðandi í umhverfismálum á orkumarkaði. Umhverfisvottunin er mikilvægur hluti af þeirri vegferð og undirstrikar skýra skuldbindingu okkar gagnvart viðskiptavinum, samfélaginu og umhverfinu.