FRÍTT KAFFI MEÐ
ORKULYKLI
Frítt kaffi allan hringinn í boði vina okkar frá Te og kaffi gegn framvísun Orkulykils.
Vinir Orkunnar
Við vitum að til að koma til móts við þarfir viðskiptavina er samvinna við aðra lykillinn. Í stað þess að reyna að vera best í allskonar viljum við vera best í að nýta staðsetningar Orkunnar fyrir fjölbreyttar vörur og þjónustur. Það gerum við í samstarfi við önnur flott vörumerki, alltaf með það markmið að einfalda líf fólks. Hér fyrir neðan höfum við safnað saman öllum Orkuvinum okkar og þeim kjörum sem hver staður býður upp á með Orkulyklinum.
JOE AND THE
JUICE
15% afsláttur og kaffi á 450 kr gegn framvísun Orkulykils.
Joe and the Juice býður uppá ilmandi kaffi, svalandi djúsa, frískandi shake-a og gómsætar samlokur.
LÖÐUR
15% afsláttur þegar þú greiðir með Orkulykli á stöðvum Löðurs.
Löður eru vistvænar þvottastöðvar sem hugsa um umhverfið. Sjálfsafgreiðslustöðvar eru opnar allan sólarhringinn.
BÆJARINS BEzTU
PYLSUR
10% afsláttur gegn framvísun Orkulykils.
Bæjarins Beztu hafa boðið Íslendingum upp á gæða pylsur í yfir 85 ár og er fyrirtækið alvöru fjölskyldufyrirtæki þar sem 4 ættliðir pylsugerðamanna hafa starfað frá opnun.
sbarro
10% afsláttur af New York style Topped gegn framvísun Orkulykils.
Sbarro bakar ekta New York pizzur úr fyrsta flokks hráefni, alltaf nýjar og ferskar.
PREPP BARINN
10% afsláttur af skálum hjá Preppbarnum gegn framvísun Orkulykils.
Markmið Preppbarsins er að auðvelda fólki að borða hollt, hvernig sem þú túlkar hollustu.
ísbúð huppu
10% afsláttur gegn framvísun Orkulykils á Huppu Austurströnd.
Ísbúð Huppu leggur sérstaka áherslu á góðan ís og fjölbreytt úrval.
klettur
10% afsláttur af smurþjónustu, hjólbörðum og vinnu gegn framvísun Orkulykils.
Klettur býður frábært úrval af dekkjum og rekur dekkjaverkstæði, smurþjónustu, varahlutaverslun og fleira.
Brauð & co
15% afsláttur af brauði & bakkelsi gegn framvísun Orkulykils.
Brauð & co er handverksbakarí sem virðir einfaldleika gamalla hefða og leggur áherslu á fyrsta flokks hráefni. Hægt er að versla bakkelsi í gegnum bílalúguna á Laugavegi 180.
lyfjaval
Apótek með framúrskarandi þjónustu og bílaapótek.
Lyfjaval leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarksverði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.
Lyfjaval stendur við Orkustöðvar og bíður upp á bílaapótek á öllum staðsetningum. Í Hæðasmára er bílaapótekið opið allan sólahringinn.
hlöllabátar
Með öllum keyptum Hlöllabátum fylgir súkkulaðistykki gegn framvísun Orkulykils.
Hlöllabátar eru órjúfanlegur hluti af þjóðarsálinni enda er um að ræða einn elsta íslenska skyndibitastað landsins.
Í Hagasmára er hægt að panta sér Hlöllabát í gegnum bílalúgu eða kíkja inn í heimsókn.
skeljungur
10% afsláttur af öllum vörum í verslun gegn framvísun Orkulykils.
Skeljungur sér um dreifingu, innkaup og heildsölu á eldsneyti, smurolíum, hreinsi- og efnavörum, áburði sem og öðrum vörum og þjónustuþáttum til fyrirtækja og bænda.