Römpum upp Suðurfell

Í samstarfi við  Römpum upp Ísland og Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra hefur Orkustöðin í Suðurfelli verið römpuð upp. Orkustöðin í Suðurfelli er fyrsta aðgengilega bensínstöð landsins og voru ramparnir formlega teknir í janúar 2023 þegar Þuríður Harpa, formaður Öryrkjabandalagsins, og Margrét Lilja, formaður Sjálfsbjargar, mættu og fylltu á tankinn.

Með því að hækka stéttina í kringum þrjár bensíndælur og færa greiðsluvélarnar neðar hafa Römpum upp Ísland bætt aðgengi fyrir hreyfihamlaða á Orkustöðinni. Bílastæðin hafa einnig verið breikkuð og allt aðgengi að og inn í verslunum verið rampað upp.

Auk orkugjafa þá eru Lyfjaval og Sbarro með verslun og þjónustu í Suðurfelli Breiðholti og settir hafa verið sjálfvirkir hurðaopnar, aðgengilegt salerni og borð í réttri hæð.

Til stendur að halda samstarfinu áfram og hefur Orkan áhuga á að verslanir við Orkustöðvar á Bústaðavegi, Reykjavíkurvegi, Miklabraut, Hraunbæ og Suðurströnd verði einnig rampaðar upp. Þess má einnig geta að verslanir við Orkuna Stokkseyri og Kleppsvegi hafa nú þegar verið rampaðar upp.

Að svona verkefni koma fjölmargir flottir aðilar. Á hópmynd eru forsvarsaðilar frá Orkunni, Römpum upp Ísland, Sjálfsbjörg, Öryrkjabandalaginu, Hverfisstjórn Breiðholts, Innviðaráðuneytinu og menta og barnamálaráðuneytinu.

Takk fyrir samstarfið kæru Orkuboltar!

Frá vinstri til hægri, röð fyrir aftan
Hringur Hilmarsson – Römpum upp Ísland, Gunnar Þór Gunnarsson – Verkefnastjóri Orkuvaktinni, Brynja Guðjónsdóttir – markaðsstjóri Orkunnar, Ósk Sigurðardóttir – framkvæmdastjóri Sjálfsbjörg, Auður Daníelsdóttir – forstjóri Orkunnar, Jóhannes Guðlaugsson – forsvarsmaður fyrir hverfisstjóra Breiðholts, Vífill Ingimarsson – framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Orkunnar, Arnar Þór Sævarsson – Mennta og barnamála ráðuneytið, Margrét Rut Eddudóttir - baráttukonu fyrir bættu aðgengi hreyfihamlaðra, Vilmundur Gíslason – framkvæmdastjóri SLF, Þorleifur Gunnlaugsson – framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Römpum upp Ísland, Tayo Örn Norðfjörð – Römpum upp Ísland, Ásmundur Einar Daðason – mennta og barnamálaráðherra í forsvari fyrir Sigurð Inga Innviðaráðherra, Guðbjörg Runólfsdóttir – verkefnastjóri markaðsmála og viðburða hjá Sjálfsbjörg, Aðalsteinn Þorsteinsson - innviðaráðuneytið, Guðni Geir Einarsson – innviðaráðuneytið, Ragnar Róbertsson - Jöfnunarsjóður, Þór Sigurþórsson  - Römpum upp Ísland.

Röð fyrir framan
Þuríður Harpa Sigurðardóttir – formaður Öryrkjabandalagsins, Haraldur Þorleifsson og sonur þeirra Margrétar– maður árins og baráttumaður fyrir bættu aðgengi hreyfihamlaðra, Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir – stjórnarformaður Sjálfsbjörg, landssamband hreyfihamlaðra